stupid borð....

jæja, Bergrós var veik í gær og vaknaði svo í nótt við hóstann sinn og kom uppí til okkar..
Svaf lítið í nótt því Bergrós var alltaf að vakna eða sparka í mig Errm

Við stóru stelpurnar erum svo báðar veikar í dag, með hita, hósta og nefrennsli og ég er komin með hausverk :/

extra viðkvæmar og svona skemmtilegt
Fékk heilar 4 mínútur til að redda mér hádegismat því hausverkurinn kom afþví  ég var ekki búin að borða neitt.... Gerði mér instant núðlur með kjúllatening, Bergrósu vantaði svo athygli þannig ég lagði skálina á borðið á matarstólnum hennar og plaff.. borðið datt af og núðlur útum allt gólf... yaaay.. eeeen gólfið er hreint þannig ég sat og týndi þær uppí skálina og fékk því gólf núðlur í matinn Angry

Agnes heldur greinilega að hún sé í keppni og ætlar að verða jafn stór og systir sín, með smá bólgu og mikinn pirring í gómnum, er samt búin að reyna að segja henni að tennurnar eigi ekki að koma strax en hún ætlar ekkert að hlusta á mína skoðun Wink 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband