Mars :)

Jæja, þá er kominn mars, enginn orðinn veikur aftur og Bergrós orðin mun hressari en áður !! LoL

Ennþá hefur ekkert gos verið keypt inná heimilið á þessu ári, farið að hlýna úti og sólin skín Smile

Bergrós heldur áfram að stripplast um og hjálpa systur sinni að vera alltaf á bossanum líka ! tekur bleiuna líka af, fer með hana inn á baðherbergi og setur í óhreinu-bleiu-fötuna !

Agnes er voða mikið að reyna að komast einhvert og situr sjálf í matarstólnum án þess að vera með stuðning þar, farin að teygja sig í dót og reyna að ná því og treður öllu sem hún nær í uppí sig Wink

Ætlum að fara til mömmu á sunnudaginn, hún á afmæli á fimmtudaginn LoL

 

-sorry ef ég er að spamma ykkur með mailinu mínuShocking, er búin að breyta aftur um lykilorð - vonandi kemur þetta ekki aftur !! Wink 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og tveimur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband